Orri: Verðum bara að setja tappann í baðkarið
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

„Það er svo sem erfitt að segja að þetta sé að smella þegar við fáum á okkur fjögur mörk. En mér finnst mörg jákvæð teikn á loft. Við þurfum fyrst og fremst að þétta okkur varnarlega, við erum að fá okkur allt of mikið af mörkum,“ sagði Orri Þórðar eftir að FH var slegið úr leik í Mjólkurbikarnum af Val í dag. Leikurinn fór 4-1
„Mér fannst margt jákvætt en við erum að gefa alltof ódýr mörk á okkur,“ sagði hann spurður um leikinn. „Það má eiginlega segja um öll mörkin að þau voru af ódýrari taginu, bara útsölu mörk.“
„Í upphafi seinni hálfleiks fáum við svona næstum-því-færi, Arna bara hársbreidd frá því að koma boltanum yfir línuna. Svo fara þær í sókn og skora ódýrt mark, svolítið saga þessa leiks,“ sagði hann um tilraunir liðsins til að breytta leiknum í hálfleik.