Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 02. júní 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Southgate mætir ekki á völlinn
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, ætlar ekki að mæta á leiki í ensku úrvalsdeildinni þegar boltinn byrjar að rúlla aftur þann 17. júní.

Leikið verður fyrir luktum dyrum og Southgate telur ekki viðeigandi að hann eða aðrir í þjálfaraliði enska landsliðsins mæti á völlinn að fylgjast með leikjum.

Southgate mun þess í stað fylgjast spenntur með leikjunum heima í sjónvarpinu.

Óvíst er hvenær Southgate getur hitt leikmenn enska landsliðsins næst en landsliðið hefur ekki spilað síðan í nóvember í fyrra.

Leikir sem áttu að vera í mars var frestað vegna kórónaveirunnar sem og EM sem átti að fara fram í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner