Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. júlí 2020 14:10
Elvar Geir Magnússon
Siggi dúlla í fullt starf hjá KSÍ út árið
Icelandair
Sigurður Sveinn Þórðarson.
Sigurður Sveinn Þórðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Sveinn Þórðarson, betur þekktur sem Siggi dúlla, hefur verið ráðinn í fullt starf hjá KSÍ út árið.

Hann mun til að byrja með einbeita sér að verkefnum tengdum A-landsliði karla og Evrópukeppni félagsliða.

Af heimasíðu KSÍ:
Sigurður Sveinn Þórðarson hefur verið ráðinn á knattspyrnusvið KSÍ og mun hann hefja þar störf 4. ágúst.

Hann er ráðinn í fullt starf til 31. desember 2020.

Til að byrja með mun Sigurður einbeita sér að verkefnum tengdum A landsliði karla og Evrópukeppni félagsliða.

Hann er í dag rekstrarstjóri Stjörnunnar og hefur mikla reynslu af störfum innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Hann hefur starfað fyrir Stjörnuna, með hléum, frá árinu 2000 hvort sem það er sem þjálfari, dómari, vallarstarfsmaður, vallarstjóri og nú síðast sem skrifstofustjóri frá árinu 2018. Einnig hefur Sigurður starfað mikið á vettvangi KSÍ og hefur hann verið búningastjóri og í liðsstjórn A landsliðs karla frá 2011.
Athugasemdir
banner
banner
banner