Fotbolti.net
02.08.22 - 13:31
Elvar Geir Magnússon

Fofana fjarlægði Leicester úr Twitter upplýsingum sínum

Fofana fjarlægði Leicester úr Twitter upplýsingum sínum
Canon

Mynd: Getty Images

Franski miðvörðurinn Wesley Fofana var titlaður sem leikmaður Leicester á Twitter samfélagsmiðlinum en athygli vekur að hann hefur nú fjarlægt 'Leicester City'.

Fofana, sem er 21 árs, hefur verið orðaður við Chelsea og Paris St-Germain
Leicester hefur átt erfiðan sumarglugga og ekki fengið neinn nýjan leikmann inn. Fofana og James Maddison eru orðaðir við brottför frá félaginu.

„Við erum nokkra leikmenn sem við viljum ekki missa en þegar allt kemur til alls þá þurfum við að selja leikmenn til að jafna út bókhaldið og virða fjármálareglur. Þetta verður mjög erfitt sumar fyrir okkur," sagði Brendan Rodgers, stjóri Leicester.
Fofana fjarlægði Leicester úr Twitter upplýsingum sínum
Canon

Mynd: Twitter

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.