Rúnar Kristinsson þjálfari KR var að vonum ánægður með 1-0 sigur liðsins á KA í Bestu deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: KA 0 - 1 KR
„Vinna útileik fyrir norðan er erfitt. Við gerðum það mjög vel, vissulega áttu KA fullt af færum og möguleikum, við áttum líka okkar færi en við vörðumst kannski full mikið, við ætluðum ekki að liggja svona neðarlega," sagði Rúnar.
Hann var gríðarlega ánægður með vinnusemina í liðinu.
„Við horfum á frammistöðuna og næsta leik hverju sinni. Við erum ekki búnir að spila vel undanfarið, vorum mjög góðir á móti Val, það var stígandi í þeim leik og aftur í dag er ég að sjá liðið mitt hlaupa og berjast," sagði Rúnar.
„Þeir sína virkilega fram á að þeir vilji berjast fyrir félagið sitt, fegurðin þarf ekki að vera til staðar við þurfum að ná í úrslit."
Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan.