Fotbolti.net
02.10.24 - 09:02
Elvar Geir Magnússon

Joe Allen verður óvænt með gegn Íslandi

Joe Allen tekur landsliðsskóna fram að nýju

Joe Allen tekur landsliðsskóna fram að nýju

Canon

Mynd: Getty Images

Icelandair
Miðjumaðurinn reynslumikli Joe Allen verður óvænt í landsliðshópi Wales sem er að fara að mæta Íslandi og Svartfjallalandi.

Þessi 34 ára leikmaður Swansea lagði landsliðsskóna á hilluna í febrúar á síðasta ári, eftir að hafa spilað fyrir þjóð sína á tveimur Evrópumótum og á HM.
Craig Bellamy landsliðsþjálfari Wales hringdi í Allen og bað hann um hjálpa liðinu í komandi leikjum, þar sem miðjumennirnir Ethan Ampadu og Aaron Ramsey eru meiddir.

Allen, sem er fyrrum leikmaður Liverpool, á 74 landsleiki að baki og var valinn í úrvalslið EM 2016 þar sem Wales komst í undanúrslit.

Wales leikur gegn Íslandi á Laugardalsvelli þann 11. október en Age Hareide opinberar landsliðshóp Íslands í dag.

Velska liðið hefur farið vel af stað undir stjórn Bellamy, með markalausu jafntefli gegn Tyrklandi og 2-1 sigri gegn Svartfellingum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.