03.05.23
Spá þjálfara í 2. deild: 4. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Haukum er spáð fjórða sæti eftir að hafa lent í níunda sæti undanfarin tvö tímabil.
Spáin:
1.
2.
3.
4. Haukar, 88 stig
5. Sindri, 73 stig
6. Höttur/Huginn, 69 stig
7. Dalvík/Reynir, 63 stig
8. Völsungur, 53 stig
9. Víkingur Ó., 46 stig
10. KV, 42 stig
11. KF, 32 stig
12. KFG, 19 stig
Lokastaða í fyrra: Haukar eru á leið inn í sitt fjórða tímabil í röð í 2. deild en liðið hefur endað í níunda sæti undanfarin tvö tímabil. Það er ekki nægilega góður árangur og er liðinu spáð betra gengi í ár.
Þjálfarinn: Atli Sveinn Þórarinsson tók við Haukum fyrir síðustu leiktíð. Atli var frábær miðvörður á sínum leikmannaferli og spilaði níu A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Hann lék sem atvinnumaður í Svíþjóð en lék með KA og Val hér heima. Eftir að skórnir fóru upp á hillu þá hefur hann þjálfað Dalvík/Reyni, Fylki og nú Hauka. Hann hefur einnig þjálfað í yngri flokkum KA og Stjörnunnar.
Álit Ástríðunnar
Hlaðvarpsþátturinn Ástríðan er leiðandi í umfjöllun um 2. deild. Þáttastjórnendur gefa sitt álit á liðunum fyrir mót.

„Eftir leik hjá Haukum á undirbúningstímabilinu.“
Um Hauka segja þeir: Við vitum ekkert hvar við höfum Hauka. Þeir hafa verið sannfærandi og ósannfærandi á undirbúningstímabilinu. Verið mjög óstöðugir eins og hefur verið þeirra saga undanfarin ár. Við fáum ekki þá tilfinningu að liðið sé tilbúið í toppbaráttu og höldum að þetta gæti orðið vonbrigðasumar á Ásvöllum.
Styrkleikar: Haukarnir eru búnir að yngja upp hópinn að mörgu leyti. Ferskari og léttari. Atli Sveinn er reynslumikill í þessum bransa þrátt fyrir ekkert alltof mörg ár sem þjálfari. Styrkleiki Haukanna er líka þegar þeir ná góðu leikjunum. Þá eru þeir góðir.
Veikleikar: Sterkt að fá inn unga og ferska menn en gæti líka verið veikleiki að vera án nokkurra reynslubolta. Fara inn í mótið með markmann fæddan 2004. Eins og góðu leikirnir eru styrkleiki þá eru slæmu leikirnir veikleiki. Alltof óstöðugir undanfarin ár og virðast ætla að vera það aftur. Gunnar Örvar er meiddur, Björgvin Stefánsson þarf að komast í gang, Alli Sindra hvergi sjáanlegur.
Lykilmenn: Ísak Jónsson, Nikola Dejan Djuric og Gunnar Örvar Stefánsson.

„Atli Sveinn Þórarinsson, þjálfari Hauka.“
Gaman að fylgjast með: Björgvin Stefánsson er mættur aftur. Það verður heldur betur gaman að fylgjast með honum í sumar.
Komnir
Aron Örn Þorvarðarson frá Fylki (á láni)
Auðun Gauti Auðunsson frá KF
Björgvin Stefánsson frá KR
Hallur Húni Þorsteinsson frá Fylki (á láni)
Kristján Gunnarsson frá Elliða
Nikola Dejan Djuric frá Þrótti V. (á láni)
Styrmir Máni Kárason frá KR
Sævar Gylfason frá KF
Sölvi Sigmarsson frá Fjölni (á láni)
Torfi Geir Halldórsson frá Breiðabliki
Tumi Þorvarsson frá HK (á láni)
Farnir
Alexander Freyr Sindrason hættur
Andri Steinn Ingvarsson í Val
Anton Freyr Hauks Guðlaugsson í Þrótt V.
Aron Skúli Brynjarsson í KV
Eysteinn Þorri Björgvinsson í Augnablik
Davíð Sigurðsson hættur
Indrit Hoti í Leikni R. (á láni)
Kristján Ólafsson í ÍH
Milos Peric til Serbíu
Oscar Francis Borg til Wales
Sævar Orri Valgeirsson í Val
Þjálfarinn segir - Atli Sveinn Þórarinsson
„Þetta er bara flott spá og truflar okkur ekkert. Við getum unnið öll þessi lið ef við spilum okkar leik. Erfiðasti mótherjinn verðum við sjálfir, við ætlum okkur að hafa fulla einbeitingu á okkur sjálfum og ná því besta mögulega út úr okkur. Við verðum í flottum málum ef við gerum það."

„Björgvin Stefánsson er mættur aftur í Hauka.“
Fyrstu þrír leikir Hauka:
5. maí, Haukar - Þróttur V. (Ásvellir)
13. maí, KV - Haukar (Auto Park)
20. maí, Haukar - Dalvík/Reynir (Ásvellir)
5. maí, Haukar - Þróttur V. (Ásvellir)
13. maí, KV - Haukar (Auto Park)
20. maí, Haukar - Dalvík/Reynir (Ásvellir)

„Nikola er einn af lykilmönnum Hauka.“

„Hvað munu Haukar gera í sumar?“