Guðný: Í dag erum við með sex meidda leikmenn
Auglýsing

ÍBV tapaði fyrir HK/Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV tapaði fyrir HK/Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við virðumst ekki vera að ná úrslitum úr leikjunum þótt við séum að standa okkur ágætlega. Varnarleikurinn er ekki nógu góður hjá okkur,\" sagði Guðný Geirsdóttir markmaður ÍBV eftir 1-0 tap gegn HK/Víkingi í kvöld.
„Við erum með 6 leikmenn meidda í dag, það er erfitt að mæta í svona leik þegar það vantar helminginn af liðinu. Ég var sjálf að spila minn annan meistaraflokksleik í dag,\"
sagði Guðný aðspurð út í stöðuna á hópnum en ÍBV var ekki með fullan hóp í dag.
„Okkar helsta markmið er að ná liðinu saman aftur og spila sem ein heild eins og í fyrra,\" sagði Guðný að lokum.
sagði Guðný aðspurð út í stöðuna á hópnum en ÍBV var ekki með fullan hóp í dag.
„Okkar helsta markmið er að ná liðinu saman aftur og spila sem ein heild eins og í fyrra,\" sagði Guðný að lokum.


