Inter er í viðræðum við Chelsea um kaup á vinstri bakverðinum Emerson Palmieri.
Hinn 25 ára gamli Emerson hefur átt erfitt uppdráttar síðan hann kom til Chelsea frá Roma í janúar árið 2018 og ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu.
Hinn 25 ára gamli Emerson hefur átt erfitt uppdráttar síðan hann kom til Chelsea frá Roma í janúar árið 2018 og ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu.
Emerson hefur spilað 19 leiki á þessu tímabili en einungis einn eftir að boltinn byrjaði að rúlla aftur eftir kórónaveiru pásuna.
Frank Lampard, stjóri Chelsea, vill fá Ben Chilwell vinstri bakvörð Leicester í sínar raðir í sumar og þá mun samkeppnin verða ennþá erfiðari fyrir Emerson.
Inter fékk í gær hægri bakvörðinn Achram Hakimi frá Real Madrid á 36 milljónir punda og nú gæti félagið fengið Emerson í vinstri bakvörðinn.
Athugasemdir