Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 03. ágúst 2021 19:35
Brynjar Ingi Erluson
Svíþjóð: Alex Þór byrjaði í tapi gegn Akropolis
Alex Þór Hauksson er kominn á fleygiferð með Öster
Alex Þór Hauksson er kominn á fleygiferð með Öster
Mynd: Getty Images
Íslenski miðjumaðurinn Alex Þór Hauksson var í byrjunarliði Öster sem tapaði fyrir Akropolis 1-0 í sænsku B-deildinni í kvöld. Þetta var annar byrjunarliðsleikur hans í röð fyrir félagið.

Alex kom til Öster frá Stjörnunni undir lok síðasta árs en það tók sinn tíma að fá tækifærið.

Hann fékk kórónaveiruna og var svo einnig frá vegna meiðsla en hefur nú byrjað síðustu tvo leiki.

Alex spilaði 66 mínútur er Öster tapaði fyrir Akropolis í sænsku B-deildinni í dag.

Þegar fjórtán leikir eru búnir af deildinni er Öster í 9. sæti deildarinnar með 18 stig, níu stigum frá umspilssæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner