Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 03. ágúst 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ásgeir Frank fagnaði afmælisdeginum með nýjum samningi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn öflugi, Ásgeir Frank Ásgeirsson, hefur framlengt samning sinn við Aftureldingu út næsta tímabil. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Ásgeir Frank kom til Aftureldingar frá Kórdrengjum í vetur og hefur verið í algeru lykilhlutverki á miðsvæði liðsins í sumar.

Hann hefur komið við sögu í öllum leikjum liðsins í Lengjudeildinni en samningur hans átti að renna út eftir þessa leiktíð.

Ásgeir, sem fagnaði 26 ára afmælisdegi sínum í gær, hélt upp á afmælið með því að framlengja samning sinn við Aftureldingu út næsta tímabil.

Afturelding er að eiga gott tímabil í Lengjudeildinni en liðið vann á dögunum þriðja leik sinn í röð og situr það í 5. sæti deildarinnar með 22 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner