Nik Chamberlain: Þær nýttu sín tækifæri þegar þau gáfust en við gerðum það ekki

Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Vonsvikinn með hluta af seinni hálfleiknum en ég get ekki kennt stelpunum um, við komum og gerðum það sem við ætluðum að gera. Úrslitin réðust á smáatriðum“ sagði Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, eftir 2-1 tap gegn Val á Origo vellinum fyrr í kvöld.
„Seinna markið sem þær skoruðu var vel spilaður fótbolti en við erum vonsvikinn með að hafa verið að elta boltann í staðinn fyrir að elta mennina. Við áttum líka okkar tækifæri, eins og ég segi þetta réðst á smáatriðum, þær nýttu sín tækifæri þegar þau gáfust en við gerðum það ekki.“
Þróttarar hafa ekki gert neitt á félagsskiptamarkaðnum til þessa og aðspurður hvort þau ætli sér að gera það segir hann:
„Við erum ennþá að bíða. Við erum bara að missa Ollu og stelpurnar sem hafa verið í hópnum í sumar hafa sýnt hvað þær geta þannig það er engin ástæða til þess að fá inn nýjan leikmann bara til að fá inn nýjan leikmann. Ég vil frekar fá inn yngri leikmenn og gefa þeim tækifæri en ef við finnum réttan leikmann erum við til í að fá hana inn en við erum ekki að missa okkur yfir þessu.“
Viðtalið við Nik má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.







