Dean Henderson varði mark Manchester United í markalausa jafnteflinu gegn Crystal Palace í gær.
David De Gea var ekki með í leiknum í gær af persónulegum ástæðum.
Samkvæmt frétt Daily Mail er De Gea farinn til Spánar þar sem Edurne, kærasta hans, á von á þeirra fyrsta barni á næstunni.
David De Gea var ekki með í leiknum í gær af persónulegum ástæðum.
Samkvæmt frétt Daily Mail er De Gea farinn til Spánar þar sem Edurne, kærasta hans, á von á þeirra fyrsta barni á næstunni.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, reiknar með að leyfa De Gea að vera á Spáni fram yfir landsleikjahléið í lok mánaðarins.
Henderson stendur því væntanlega vaktina í markinu í þeim fimm leikjum sem eru framundan fram að landsleikjahléi.
Athugasemdir