Gabriel Martinelli skrifaði í gær undir nýjan langtímasamning við Arsenal. Hann gekk í raðir félagsins frá Ituano fyrir tímabilið sem enn er í gangi.
Hann skoraði tíu mörk í 26 leikjum en glímir nú við meiðsli.
Hann skoraði tíu mörk í 26 leikjum en glímir nú við meiðsli.
„Eg er mjög ánægður að hafa skrifað undir nýjan samning við þetta frábæra félag. Ég vil þakka Arsenal og öllum stuðningsmönnum félagsins fyrir stórkostlegt ár," skrifar Martinelli á Instagram.
„Þetta er það fyrsta af mörgum og ég get ekki beðið eftir að taka þátt í þeim spennandi tímabilum sem framundan eru!"
Tony Adams, fyrrum fyrirliði Arsenal, skrifar: „Spilaðu fyrir nafnið framan á treyjunni og 'þeir' munu muna eftir nafninu aftan á henni."
Gabi knows! 💛
— Arsenal (@Arsenal) July 3, 2020
❤️ @TonyAdams pic.twitter.com/zfqLiFpIxo
Athugasemdir