Istanbul Basaksehir vann 2-1 heimasigur á Manchester United í Meistaradeildinni í kvöld. Demba Ba og Edin Visca skoruðu mörk tyrkneska liðsins og Anthony Martial mark gestanna frá Manchester.
Mörkin sem Basaksehir skoruðu í kvöld voru heldur slysaleg og er komið inn á það hér að neðan.
Mörkin sem Basaksehir skoruðu í kvöld voru heldur slysaleg og er komið inn á það hér að neðan.
Samuel Luckhurst hjá ManchesterEveningNews gaf leikmönnum United einkunn fyrir framistöðuna í leiknum. Þá má einnig sjá valdar umsagnir. Allar umsagnirnar má sjá hér.
Dean Henderson 5
Aaron Wan-Bissaka 3 - Aðgerð hans í fyrra markinu galin, ekki sjáanlegur í öðru markinu og fyrirgjafirnar lélegar.
Axel Tuanzebe 4
Harry Maguire 3 - Má segja að hann hafi verið afleitur sem leiðtogi í kvöld.
Luke Shaw 4 - Fjarverandi í öðru markinu, lagði upp markið fyrir Martial.
Donny van de Beek - 4
Nemanja Matic 3 - Óútskýranleg ákvörðun þegar hann yfirgefur stöðu sína sem gefur Demba Ba flugbraut upp allan völlinn. Spilaði í miðverði í seinni.
Juan Mata 3 - Tapaði boltanum í öðru markinu, tekinn af velli eftir korter í seinni.
Marcus Rashford 3
Bruno Fernandes 3 - Kom Mata í vesen í öðru markinu, kærulaus með boltann og er að eiga of marga leiki þar sem hann er ekki upp á sitt besta.
Anthony Martial 5 - Gerði lítið fyrir markið sem hann skoraði og náði ekki að byggja ofan á markið.
Athugasemdir