Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 05. janúar 2020 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arsenal spyrst frekar fyrir um Boateng
Jerome Boateng.
Jerome Boateng.
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur áhuga á Jerome Boateng, varnarmanni Bayern Münhen, og hefur spurst fyrir um kaupverð, lánsmöguleika og launakröfur leikmannsins.

Frá þessum tíðindum segir Sky í Þýskalandi.

Þessi 31 árs gamli miðvörður vill fara frá Bayern og má fara frá félaginu í þessum mánuði. Talið er að Bayern sé tilbúið að leyfa honum að fara fyrir 15 milljónir evra.

Calum Chambers spilar ekki meira á tímabilinu og Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vill fá inn miðvörð í glugganum.

Boateng varð Heimsmeistari með Þýskalandi 2014 og hefur spilað meira en 300 leiki með þýska stórveldinu Bayern.

Ólíklegt er að Arsenal geri stórar fjárfestingar í þessum mánuði eftir að hafa varið um 150 milljónum punda í leikmannakaup síðasta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner