05.05.24 - 12:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Albert veikur og spilar ekki í dag


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Albert Guðmundsson er ekki í leikmannahópi Genoa fyrir leik liðsins gegn AC Milan í 35. umferð Seríu A í dag. Liðin mætast á San Siro í dag og hefst leikurinn klukkan 16:00.
Ástæðan fyrir fjarveru Alberts eru veikindi sem hann náði ekki að hrista af sér í tæka tíð fyrir leikinn.
Ástæðan fyrir fjarveru Alberts eru veikindi sem hann náði ekki að hrista af sér í tæka tíð fyrir leikinn.

TENGT EFNI
Bíddu Albert, bíddu mín
Albert er 25 ára og er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Victor Osimhen. Einungis Dusan Vlahovic og Lautaro Martínez hafa skorað meira en Albert í deildinni en hann er með fjórtán mörk skoruð og þrjár stoðsendingar.
Nýliðarnir í Genoa eru í tólfta sæti á meðan AC Milan er í öðru sæti. Albert er á sínu öðru fulla tímabili hjá Genoa og er hann sterklega orðaður við stærri félög þessa dagana.
Nýliðarnir í Genoa eru í tólfta sæti á meðan AC Milan er í öðru sæti. Albert er á sínu öðru fulla tímabili hjá Genoa og er hann sterklega orðaður við stærri félög þessa dagana.
