Fotbolti.net
05.06.21 - 16:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Buendia að ganga í raðir Aston Villa - Tilboði Arsenal neitað

Buendia að ganga í raðir Aston Villa - Tilboði Arsenal neitað
Canon

Mynd: Getty Images

Emi Buendia miðjumaður Norwich er nálægt því að ganga í raðir Aston Villa en þessu greinir félagsskipta sérfræðingurinn Fabrizio Romano frá á Twitter síðu sinni í dag.
Buendia hefur verið sterklega orðaður við Arsenal síðustu mánuði en nú lítur út fyrir að þeir séu búnir að tapa baráttunni um hann og hann sé að ganga óvænt til liðs við Aston Villa.

Sagt er að hann muni ganga til liðsins á næstu klukkutímum en hann er búinn að ná munnlegu samkomulagi við Aston Villa um að ganga til liðsins.

Talið er að Norwich samþykki tilboð uppá 35 milljónir punda í leikmanninn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.