Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 05. september 2020 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd boðið að kaupa Reguilon
Sergio Reguilon.
Sergio Reguilon.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur verið boðið að kaupa vinstri bakvörðinn Sergio Reguilon.

Reguilon hefur verið orðaður við mörg stórlið í sumar eftir að hafa átt gott tímabil á láni hjá Sevilla þar sem hann var einn af betri bakvörðum spænsku úrvalsdeildarinnar.

Hann er samningsbundinn Real Madrid en svo virðist sem framtíð hans sé ekki mjög mikil þar.

Fabrizio Romano, fjölmiðlamaðurinn sem er með allt á hreinu þegar kemur að leikmannarmarkaðnum, segir að Manchester United hafi verið að boðið að kaupa hinn 23 ára gamla Reguilon.

Hjá Manchester United eru fyrir Brandon Williams og Luke Shaw í stöðu vinstri bakvarðar.

Athugasemdir
banner
banner
banner