Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 05. október 2019 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vonar að De Bruyne og Stones snúi aftur eftir landsleikjahlé
Kevin de Bruyne.
Kevin de Bruyne.
Mynd: Getty Images
Kevin de Bruyne, miðjumaður Manchester City, er ekki klár í slaginn fyrir leik helgarinnar.

Man City leikur gegn Úlfunum á sunnudag.

Belgíski miðjumaðurinn varð fyrir nárameiðslum í sigri Man City gegn Everton um síðustu helgi. Hann missti þess vegna af leiknum gegn Dinamo Zagreb í Meistaradeildinni í vikunni.

John Stones er einnig á meiðslalistanum, en Pep Guardiola, stjóri City, vonast til þess að þeir snúi báðir aftur á völlinn gegn Crystal Palace eftir landsleikjahlé.

Líklegt er að Fernandinho byrji við hlið Nicolas Otamendi í vörn City á sunnudaginn, líkt og hann hefur gert undanförnum leikjum. Guardiola gæti líka sett Fernandinho á miðjuna og spilað með hinn 18 ára gamla Spánverja, Eric Garcia, í hjarta varnarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner