Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 05. október 2020 10:25
Magnús Már Einarsson
Reglur brotnar í óvæntri afmælisveislu Abraham
Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnusambandið er að rannsaka afmælisveislu sem var haldin í tilefni af 23 ára afmæli Tammy Abraham, framherja Chelesa.

Vinir Abraham skipulögðu óvænta afmælisveislu í London á laugardag en þar voru meðal annars mættir ensku landsliðsmennirnir Jadon Sancho og Ben Chilwell.

Sex manna samkomubann er í Englandi vegna kórónuveirunnar og ljóst er að reglur voru brotnar í veislunni þar sem fleiri voru mættir þar. Abraham segir að allir gestir hafi verið hitamældir þegar þeir mættu í veisluna.

Abraham hefur beðist afsökunar en enska knattspyrnusambandið er með málið til skoðunar.

Enski landsliðshópurinn kemur saman í dag og líklegt þykir að Gareth Southgate, landsliðsþjálfari, muni áminna Abraham, Sancho og Chilwell fyrir að mæta í veisluna.
Athugasemdir
banner
banner
banner