Fotbolti.net
05.10.26 - 20:10
Ívan Guðjón Baldursson

Óstöðvandi Gyökeres bætti eigið met

Óstöðvandi Gyökeres bætti eigið met
Canon

Mynd: EPA

Sænski framherjinn Viktor Gyökeres byrjaði alla leiki sænska landsliðsins í Þjóðadeildinni í yfirstandandi landsleikjaglugga.
Gyökeres sjóðandi heitur - Sá fyrsti í sögunni
TENGT EFNI

Gyökeres sjóðandi heitur - Sá fyrsti í sögunni

Hann skoraði í þremur fyrstu leikjunum gegn Rúmeníu, Póllandi og Bosníu og er að spila seinni leikinn við Rúmeníu þessa stundina.

Hann er búinn að skora eina mark leiksins í Rúmeníu þegar um 20 mínútur eru eftir af venjulegum leiktíma.

Gyökeres er þar með búinn að skora í síðustu sjö leikjum sínum í röð í Þjóðadeildinni sem er met í keppninni. Svíinn er fyrsti leikmaðurinn til að afreka þetta frá því að Þjóðadeildin var sett á laggirnar fyrir átta árum síðan. Hann bætti eigið met sem hann setti þegar hann skoraði í sjötta leiknum í röð í síðustu umferð.

28 ára Gyökeres er með þessu marki búinn að skora 25 sinnum í 41 landsleik fyrir Svíþjóð. Á þessu ári er hann kominn með 10 mörk í 11 landsleikjum.
Óstöðvandi Gyökeres bætti eigið met
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.