Þór vann sinn fyrsta leik í riðli tvö í Kjarnafæði mótinu í dag en liðið lagði KA 2 með sjö mörkum gegn engu.
Je-Wook Woo skoraði fjögur, Bjarni Guðjón Brynjólfsson skoraði tvö og Sigfús Fannar Gunnarsson skoraði eitt.
Je-Wook Woo er suður kóreskur sóknarmaður sem er á reynslu hjá Þór og byrjar vægast sagt með krafti.
Þór er í leit að framherja en Alvaro Montejo hefur verið iðinn við kolann hjá þeim undanfarin ár en hann hefur haldið til Spánar. Þá hefur Jóhann Helgi Hannesson lagt skóna á hilluna.
Þetta var fyrsti leikurinn í Kjarnafæðimótinu en Dalvík/Reynir og KF mætast á föstudaginn.
Athugasemdir