Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 05. desember 2021 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu glæsilegt sigurmark Fred - Rangnick var hissa
Fred.
Fred.
Mynd: EPA
Brasilíski miðjumaðurinn Fred skoraði sigurmarkið þegar Manchester United lagði Crystal Palace að velli, 1-0, í fyrsta leiknum undir stjórn Ralf Rangnick.

Fred hefur fengið mikla gagnrýni á þessari leiktíð en hann skoraði eina mark leiksins með glæsilegu skoti eftir undirbúning Mason Greenwood.

Fred er ekki þekktur fyrir að vera mikill skotmaður og sérstaklega ekki með hægri fæti, en þarna gekk allt upp hjá honum.

„Ég varð að spyrja aðstoðarþjálfarann hvort Fred hefði í alvöru skorað með hægri. Ég hélt að hann gæti bara skotið með vinstri. Ég var ánægður fyrir hans hönd," sagði Rangnick, stjóri Man Utd, eftir leikinn.

Hægt er að skoða markið sem Fred skoraði með því að smella hérna
Athugasemdir
banner
banner