Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 06. mars 2021 19:07
Victor Pálsson
Berglind sneri aftur í enn einu tapi Le Havre
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Berglind Björg Þorvaldsdóttir sneri aftur í lið Le Havre í dag sem spilaði við Fleury 91 í efstu deild kvenna í Frakklandi.

Berglind hafði verið fjarri góðu gamni að undanförnu en var mætt á völlinn í dag.

Landsliðsframherjinn gat þó ekki komið í veg fyrir tap í dag en Le Havre lá 1-0 á útivelli og situr enn á botni deildarinnar.

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir leika einnig með liðinu og spiluðu allan leikinn.

Le Havre er aðeins með fimm stig á botni deildarinnar og hefur unnið einn leik af fyrstu 15.
Athugasemdir
banner
banner