Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 06. mars 2021 18:00
Victor Pálsson
Man Utd þarf að borga vel ef Bruno verður valinn bestur
Mynd: Getty Images
Manchester United þarf að borga Sporting Lisbon 4,2 milljónir punda ef Bruno Fernandes verður valinn leikmaður tímabilsins.

The Times greinir frá þessu en Fernandes hefur átt afar gott tímabil og er lykilmaður í liði Man Utd sem er í öðru sæti.

Portúgalinn hefur skorað 22 mörk og lagt upp önnur 12 í öllum keppnum og þykir líklegur til að vinna þessi verðlaun.

Samkvæmt Times er klásúla í samningi Fernandes sem þýðir að Man Utd þyrfti að borga Sporting rúmar fjórar milljónir.

Miðjumaðurinn kom til enska liðsins í janúar 2020 og kostaði þá 46,6 milljónir punda.

Nokkrar klásúlur fylgdu þessum félagaskiptum og hefur Man Utd einnig borgað 4,2 milljónir aukalega eftir 25. byrjunarliðsleik Fernandes.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner