Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 06. maí 2022 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spáin fyrir 3. deild: Kári og KFG fara upp
Ástríðan
Ástríðan
Mynd: Fótbolti.net
Endar Kári í efsta sæti?
Endar Kári í efsta sæti?
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Þeir Gylfi Tryggvason og Sverrir Mar Smárason spáðu í spilin fyrir 3. deild karla í síðasta mánuði. Þeir eru þáttarstjórnendur Ástríðunnar.

„Ég held að það sé talsvert auðveldara að lesa í hvaða lið verði í efri hlutanum og hvaða lið verða í neðri hlutanum miðað við hvernig var að spá í 2. deild," sagði Gylfi.

Spáin var byggð á undirbúningstímabilinu og félagaskiptamarkaðnum og var tekin saman þann 10. apríl.

Ástríðan mun fylgjast vel með 3. deildinni í sumar sem og 2. deild.

Spá Ástríðunnar fyrir 3. deild:
1. Kári
2. KFG
3. Sindri
4. Víðir
5. Elliði
6. Vængir
7. Dalvík/Reynir
8. KH
9. Augnablik
10. KFS
11. Kormákur/Hvöt
12. ÍH

Fyrsta umferð:
föstudagur 6. maí
19:00 Vængir Júpiters-Kormákur/Hvöt (Fjölnisvöllur - Gervigras)
20:00 KFG-Víðir (Miðgarður)

laugardagur 7. maí
13:00 Dalvík/Reynir-KH (Dalvíkurvöllur)
14:00 Elliði-Augnablik (Fylkisvöllur)
14:00 KFS-ÍH (Týsvöllur)
15:00 Sindri-Kári (Sindravellir)

Hér að neðan má svo nálgast nýjasta þátt Ástríðunnar.
Ástríðan - Spá fyrir 3. deild
Ástríðan - Veislan er að hefjast
Athugasemdir
banner
banner
banner