Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir var í byrjunarliði Örebro þegar liðið vann 4-1 sigur á Brommapojkjarna í sænsku deildinni í dag.
Áslaug var tekin af velli undir lok leiksins en þá var Katla María Þórðardóttir komin inn á sem varamaður en Bergþóra Sól Ásmundsdóttir sat allan tímann á varamannabekknum.
Þær voru allar í u23 ára landsliðshópnum sem æfði saman í lok síðasta mánaðar.
Þetta var fyrsti sigur Örebro í deildinni eftir níu umferðir en liðið er með fjögur stig í næst neeðsta sæti.
Athugasemdir