Fotbolti.net
06.06.26 - 16:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Breki Þór fór hamförum í sigri Vestra

Lengjudeildin: Breki Þór fór hamförum í sigri Vestra
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Vestri 5 - 1 Völsungur
1-0 Johannes Selvén ('12 )
1-1 Elfar Árni Aðalsteinsson ('22 )
2-1 Breki Þór Hermannsson ('60 )
3-1 Gunnar Jónas Hauksson ('65 )
4-1 Gunnar Jónas Hauksson ('67 )
5-1 Þórður Gunnar Hafþórsson ('86 )
Lestu um leikinn
Vestri fékk Völsung í heimsókn í Lengjudeildinni í dag. Vestri gat unnið annan leik sinn í röð á meðan Völsungur gat unnið sinn fyrsta sigur.

Vestri náði forystunni þegar Johannes Selvén eftir sendingu frá Breka Þór Hermannssyni en markið kom eftir mikinn vandræðagang í vörn Völsungs.

Elfar Árni Aðalsteinsson jafnaði metin fyrir Völsung eftir fyrirgjöf frá Arnari Pálma Kristjánssyni.

Staðan var jöfn í hálfleik en Vestri og Breki Þór fóru hamförum í seinni hálfleik. Breki kom Vestra yfir þegar hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Emmanuel Duah.

Gunnar Jónas Hauksson skoraði síðan tvö mörk fyrir Vestra á tveggja mínútna kafla en Breki lagði upp bæði mörkin. Hann var því kominn með mark og þrjár stoðsendingar.

Gunnar Jónas var nálægt því að skora þrennuna þegar hann átti skot fyrir utan teiginn en Jochum Magnússon varði boltann út í teiginn. Þangað mætti Þórður Gunnar Hafþórsson og innsiglaði sigur Vestra.

Vestri er í 5. sæti með 13 stig en Völsungur er á botninum með tvö stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Þróttur R.15+1730
3Fylkir15+1030
4HK16+928
5Njarðvík15+223
6Grótta14+122
7Vestri15-521
8Leiknir R.15-419
9ÍR16-916
10Grindavík15-514
11Völsungur15-1511
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.