Búið er að færa leik Vals og Stjörnunnar í 6. umferð í Pepsi Max-deild karla.
Leikmenn Stjörnunnar hafa verið í sóttkví undanfarið eftir að smit greindist í leikmannahópi liðsins.
Leikmenn Stjörnunnar hafa verið í sóttkví undanfarið eftir að smit greindist í leikmannahópi liðsins.
Stjarnan hefur ekki spilað í síðustu tveimur umferðum en leikjum liðsins gegn KA og FH var frestað. Sömu sögu er að segja af leiknum við KR sem átti að fara fram í þessari viku.
Leikmenn Stjörnunnar losna úr sóttkví á föstudag og hefja þá undirbúning fyrir leikinn gegn Val.
Leikurinn gegn Val átti að fara fram næstkomandi sunnudag en fer nú fram á mánudaginn klukkan 19:15 á Origo-vellinum.
Athugasemdir