Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 06. júlí 2021 08:00
Elvar Geir Magnússon
EM spáin - Ítalirnir eru betri núna
Ítalía - Spánn í kvöld klukkan 19:00
Það er komið að undanúrslitum.
Það er komið að undanúrslitum.
Mynd: Fótbolti.net - Samsett
Ciro Immobile.
Ciro Immobile.
Mynd: EPA
Þjóðverjinn Felix Brych dæmir undanúrslitaleik Ítalíu og Spánar á EM alls staðar annað kvöld. Það er mikil spenna fyrir leiknum en allir þrír leikirnir sem eftir eru á mótinu verða leiknir á Wembley.

Spámenn Fótbolta.net eru Tómas Þór Þórðarson íþróttafréttamaður og Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður. Þeir spá um úrslit allra leikja í útsláttarkeppninni ásamt fulltrúa Fótbolta.net. Fyrir hárréttar lokatölur fást 3 stig en 1 stig ef rétt tákn er á leiknum

Tómas Þór Þórðarson

Ítalía 2 - 1 Spánn
Ítalía var afskaplega sannfærandi gegn Belgíu og virðist vera komið lengra með sitt lið og sín fræði heldur en Spánn þó allt virðist vera á uppleið hjá Spánverjum. Mér líst vel á þetta spænska lið til framtíðar en Ítalirnir eru betri núna og eiga að hafa þetta í góðum fótboltaleik.

Benedikt Bóas Hinriksson

Ítalía 3 - 3 Spánn
Það er X í þessum leik. Eitthvað skemmtilegt markajafntefli hvort sem það er 2-2 eða 3-3. Jafnvel þó Ítalir séu ekkert mikið að fá á sig mörk. Ég er til í að henda í 3-3 og framlengingu. Þar loka Ítalar fyrir og vinna í vítaspyrnukeppni. Ítalir eru að fara vinna þetta mót. Það er skrifað í skýinn. Mánaskin í Eurovision og svo núna landsliðið. Það er gleði í kortunum þar á bæ.

Fótbolti.net - Mate Dalmay

Ítalía 2 - 1 Spánn
Ítalir halda áfram að vera massívir og koma sér í úrslitaleikinn með 2-1 sigri. Immobile skorar tvö mörk snemma leiks sem dugar til sigurs. Morata minnkar muninn á 91mínútu en það mun ekki duga neitt.



STAÐAN Í KEPPNINNI
Fótbolti.net 10 stig
Tómas Þór 9 stig
Benedikt Bóas 7 stig
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner