Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. júlí 2022 12:15
Brynjar Ingi Erluson
Tottenham að landa Spence - Kynntur fyrir helgi
Djed Spence verður kynntur fyrir helgina
Djed Spence verður kynntur fyrir helgina
Mynd: Getty Images
Enski hægri bakvörðurinn Djed Spence er næstur inn hjá Tottenham og mun hann ganga í raðir félagsins fyrir helgi en þetta segir John Percy á Telegraph.

Spence, sem er 21 árs gamall, var einn besti maður Nottingham Forest á síðustu leiktíð er liðið kom sér upp í ensku úrvalsdeildina í gegnum umspilið.

Hann var þá á láni frá Middlesbrough en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst Forest ekki að gera félagaskiptin varanleg.

Tottenham hefur verið í viðræðum við Forest síðustu vikur og hafa félögin nú komist að samkomulagi um kaupverð en Tottenham greiðir 15 milljónir punda fyrir Englendinginn.

Félagið bindur miklar vonir við að ganga frá skiptunum fyrir helgi eða áður en liðið heldur til Suður-Kóreu í æfingaferðalag.

Hann verður fimmti leikmaðurinn sem félagið fær í sumar á eftir Richarlison, Yves Bissouma, Fraser Forster og Ivan Perisic. Þá er franski varnarmaðurinn Clement Lenglet á leið á láni frá Barcelona.
Athugasemdir
banner