Fotbolti.net
06.09.20 - 15:15
Victor Pálsson

Sancho um sögusagnirnar: Alltaf að búa eitthvað til

Sancho um sögusagnirnar: Alltaf að búa eitthvað til
Canon

Mynd: Getty Images

Jadon Sancho, leikmaður Borussia Dortmund, hefur tjáð sig um möguleg skipti í sumar en hann er sterklega orðaður við brottför.
Fjölmiðlar keppast við að fjalla um Sancho og eru hin ýmis félög nefnd til sögunnar og þá helst Manchester United á Englandi.

Sancho spilaði með enska landsliðinu í gær gegn Íslandi í Þjóðadeildinni en þeim leik lauk með 1-0 sigri Englands.

Vængmaðurinn lætur þessar sögusagnir ekki bögga sig og einbeitir sér aðeins að fótboltanum.

„Þetta angrar mig ekki neitt, fjölmiðlarnir eru eins og þeir eru," sagði Sancho í samtali við Sport Bible.

„Þeir munu alltaf reyna að búa eitthvað til en svona bregstu við því. Ég einbeiti mér bara að fótboltanum."

„Ég vil reyna að gera mitt besta fyrir félagið og vinna titla í lok dags."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.