Elseid Hysaj, fyrirliði albanska landsliðsins, meiddist í 0-0 jafntefli Torino og Napoli í Seríu í kvöld.
Hysaj er fyrirliði albanska landsliðsins en liðið er með 9 stig í H-riðli í undankeppni Evrópumótsins, aðeins þremur stigum á eftir íslenska landsliðinu.
Hann spilaði með Napoli í markalausu jafntefli gegn Torino í kvöld og meiddist.
Hann lenti í samstuði við Christian Ansaldi, leikmann Torino og fékk þungt högg á bringubeinið og mun því líklegast missa af leikjum albanska landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins.
Þetta er mikið högg fyrir Albaníu en Hysaj er alger lykilmaður hjá Albaníu en liðið mætir Tyrklandi og Moldóvu.
Athugasemdir