Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 06. desember 2019 21:39
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Millwall jafnaði í uppbótartíma
O'Brien var hetja Millwall í kvöld.
O'Brien var hetja Millwall í kvöld.
Mynd: Getty Images
Millwall 2 - 2 Nottingham Forest
1-0 Shaun Williams ('15)
1-1 Lewis Grabban ('63)
1-2 Lewis Grabban ('88)
2-2 Aiden O'Brien ('92)

Jón Daði Böðvarsson var ónotaður varamaður og horfði á liðsfélaga sína í Millwall gera 2-2 jafntefli við Nottingham Forest í fyrsta leik helgarinnar í Championship deildinni.

Shaun Williams kom heimamönnum í Millwall yfir snemma leiks en hinn reynslumikli Lewis Grabban jafnaði á 63. mínútu.

Grabban virtist hafa gert sigurmarkið fyrir sína menn á 88. mínútu en varamaðurinn Aiden O'Brien jafnaði í uppbótartíma.

Millwall er um miðja deild, með 27 stig eftir 20 umferðir. Nottingham er í fjórða sæti, með 33 stig eftir 19 spilaða leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner