Micah Richards og Darren Fletcher voru sérfræðingar í setti hjá Sky Sports í kringum viðureign Manchester United og Manchester City sem fram fór í kvöld.
Richards, sem er fyrrum leikmaður City, hrósaði Kevin de Bruyne, miðjumanni City, í hástert í kvöld.
Richards, sem er fyrrum leikmaður City, hrósaði Kevin de Bruyne, miðjumanni City, í hástert í kvöld.
„Að mínu mati er hann besti miðjumaður í heimi, hlutirnir gengu ekki upp hjá honum hjá Chelsea en hann hefur komið til baka eftir það," sagði Richards og hélt áfram: „Einhverjir efuðust þegar City borgaði 55 milljónir punda fyrir hann en hann virði hans hefur tvöfaldast ef ekki þrefaldast með frammistöðu hans."
Fletcher, sem er fyrrum leikmaður Manchester United, tók í svipaðan streng: „Hann er frábær leikmaður. Hann getur ógnað þér á svo marga vegu, ef þú tekur skref til baka finnur hann sendinguna en ef þú nálgast hann getur hann farið fram hjá þér. Hann er hrikalega góður," sagði Fletcher.
De Bruyne átti stóran þátt í þriðja marki City liðsins í kvöld í 1-3 sigri á United. Hann átti þá skot sem David de Gea, í marki United, varði út í teiginn og þar fór boltinn í Andreas Pereira og í netið, sjálfsmark.
De Bruyne fékk 8 í einkunn fyrir frammistöðu sína í leiknum í einkunnagjöf Mirror einu lægra en Bernardo Silva (9) sem var valinn maður leiksins.
Athugasemdir