Fotbolti.net
07.02.21 - 15:51
Victor Pálsson

England: Markalaust í öðrum leik dagsins

England: Markalaust í öðrum leik dagsins
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Wolves 0 - 0 Leicester</b>
Knattspyrnuáhugamenn fengu því miður engin mörk í öðrum leik dagsins á Englandi sem fór fram í Wolverhampton í dag.

Wolves spilaði þar við Leicester City í fínum fótboltaleik þar sem þrjú stig hefðu gert mikið fyrir bæði lið.

Leikurinn var heilt yfir ágætlega fjörugur en bæði lið voru þó í smá basli með að skapa sér alvöru tækifæri.

Jamie Vardy er helsta vopn Leicester í sókninni en hann hóf leikinn á bekknum og kom við sögu í seinni hálfleik.

Markalaust jafntefli var niðurstaðan á Molineaux vellinum sem eru svekkjandi úrslit fyrir liðin.

Leicester mistókst að komast í annað sæti deildarinnar og situr Wolves enn í því fjórtánda eftir 22 leiki.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.