Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 07. febrúar 2021 17:00
Victor Pálsson
Fabian Schar lengi frá vegna meiðsla - Stefnir á að ná EM
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Fabian Schar verður frá keppni næstu mánuðina vegna meiðsla en þetta staðfesti hann sjálfur á Twitter í dag.

Schar er mikilvægur hlekkur í liði Newcastle en hann meiddist í 3-2 sigri á Southampton á laugardag.

Schar sleit liðband í hné og verður hann frá í nokkra mánuði vegna þess sem er áfall fyrir Steve Bruce og hans menn.

Schar segist stefna að því að vera búinn að ná sér áður en EM fer fram í sumar. Hann er landsliðsmaður Sviss.

Þessi 29 ára gamli leikmaður fór af velli þegar 18 mínútur voru eftir og kláraði Newcastle leikinn með níu menn innan vallar.

Jeff Hendrick hafði áður fengið rautt spjald og var liðið búið að nota allar skiptingar.
Athugasemdir
banner
banner
banner