Hallbera: Alltaf að rétta Fanndísi samning og penna
Auglýsing

Hallbera í viðtali fyrir æfingu í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallbera í viðtali fyrir æfingu í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Við vitum að þeir leikir sem eftir eru, eru hálfgerðir úrslitaleikir. Slóvenar eru með fínt lið og þetta verður tricky leikur. Við verðum að koma vel stemmdar inn í hann,\"</I> sagði Hallbera Guðný Gísladóttir, landsliðskona, við Fótbolta.net fyrir landsliðsæfingu í gær en Ísland mætir Slóveníu á mánudaginn.
Ísland er í 2. sæti í undankeppni HM en kemst á toppinn með sigri á Slóveníu á mánudag. Í kjölfarið eru lokaleikir riðilsins á heimavelli gegn Þýskalandi og Tékklandi í september.
„Ef við gerum þetta ekki almennilega núna þá verður ekkert úr þessum leikjum í september. Við þurfum að spila þennan leik eins og úrslitaleik og það verður ekki vandamál að gíra sig inn í hann.\"
Fanndís Friðriksdóttir, herbergisfélagi Fanndísar í landsliðinu, er á leið aftur í Pepsi-deildina eftir dvöl hjá Marseille. Hallbera er að reyna að fá Fanndísi í Val.
„Ég er alltaf að rétta henni penna og samning og bíð eftir að hún skrifar undir. Ég reyni að sjálfsögðu. Rautt fer henni vel og ég gæti alveg séð þetta gerast,\" sagði Hallbera.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.