Framherji Qarabag: Skiptir engu að þeir séu í Lengjudeildinni þetta var Evrópuleikur


Mynd: Djurgarden IF


Mynd: Djurgarden IF
Zakaria Sawo framherji Qarabag reyndist Vestra mönnum erfiður í kvöld þegar Aserarnir unnu 3-0 og unnu því einvígið í forkeppni Evrópudeildarinnar 6-0. Hann lagði upp tvö mörk og skoraði eitt, en bar mikla virðingu fyrir andstæðingum sínum.
„Við komum hingað fyrir tveim dögum síðan og erum búnir að taka tvær æfingar. Í kvöld spilum við 90 mínútur sem mér fannst við gera vel, skoru tvö í fyrri hálfleik og eitt í seinni. Við fáum engin mörk á okkur, þannig þetta var fín frammistaða. Auðvitað getum við alltaf bætt okkur, við erum nýbyrjaðir á tímabilinu, en þetta var fínt," sagði Sawo.
Qarabag er miklu stærra félagslið en Vestri, bæði fjárhagslega og með Evrópu reynsluna.
„Maður sér greinilega að þeir eru með góða leikmenn með gæði. Þótt þeir séu í Lengjudeildinni skiptir það engu máli, þetta er Evrópuleikur og þeir gáfu sig alla í þetta. Þegar andstæðingurinn gefur sig allan í verkefnið verður þetta aldrei auðvelt. Þannig við þurftum að þrýsta á móti, og við gerðum okkar besta, og á endanum unnum," sagði Sawo.
Leiðin frá Aserbaísjan til Íslands er löng, en Qarabag menn flugu til landsins í einka flugvél.
„Félagið gerði ferðalagið auðvelt fyrir okkur. Við höfum notið þess að vera hér, þannig það var allt í góðu," sagði Sawo.
Sawo spilar fyrir landslið Gambíu, en er fæddur og uppalinn í Svíþjóð. Það ætti því að vera töluvert öðruvísi að spila fyrir lið frá Aserbaísjan.
„Menningin hjá félaginu er frábær. Ég er ekki búinn að vera hér lengi, en frá því ég kom fyrst hefur verið tekið vel á móti mér. Þannig mér líður vel," sagði Sawo.
Þar sem hann er frá Svíþjóð ætti hann að vera vanur því að spila í 10° og rigningu eins og var í Laugardalnum í kvöld. Hann segist hins vegar ekki hafa verið mjög hrifinn.
„Ég held ég sé einn af verstu kuldaskræfunum í liðinu. Ég er ekki beint kampakátur með veðrið, en þetta er allt í góðu lagi. Erum hér bara 1-2 daga, svo beint aftur til Baku í hitann," sagði Sawo.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.





