Ítalski þjálfarinn Alberto Aquilani er að taka við ítalska A-deildarliðinu Sassuolo.
Aquilani, sem spilaði meðal annars með Liverpool og Roma á leikmannaferli sínum, hóf þjálfaraferil sinn árið 2018 hjá Fiorentina þar sem hann þjálfaði unglingaliðin, en árið 2023 fékk hann tækifærið hjá Pisa í B-deildinni.
Á síðasta ári tók hann við Catanzaro og kom þeim alla leið í úrslitaleik umspilsins við Monza um sæti í úrvalsdeildinni. Þar sýndi liðið hetjulega baráttu.
Liðið vann 2-0 útisigur í fyrri leiknum en tapaði seinni leiknum með sömu markatölu. Reglurnar á Ítalíu er þannig að ef liðin enda jöfn eftir þessa tvo úrslitaleiki mun það lið sem endaði ofar á töflunni taka sæti í efstu deild.
Grátlegt niðurstaða hjá Aquilani og Catanzaro, en ítalski þjálfarinn fær tækifæri til að þjálfa í A-deildinni eftir allt saman. Fabrizio Romano segir hann hafa samþykkt að taka við Sassuolo.
Fabio Grosso hætti með liðið á dögunum og tók við Fiorentina, og opnaðist í kjölfarið staðan fyrir Aquilani sem mun skrifa undir samninginn á næstu dögum.
Sassuolo, sem var nýliði í A-deildinni á síðustu leiktíð, hafnaði í 11. sæti.


