Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 07. ágúst 2020 20:20
Aksentije Milisic
„Sancho mun vinna Gullknöttinn í framtíðinni"
Mynd: Getty Images
Louis Lancaster, sem þjálfaði Jadon Sancho hjá Watford á sínum tíma, segir að leikmaðurinn muni vinna Gullknöttinn í framtíðinni.

Sancho hefur mikið verið orðaður við Manchester United undanfarið en ekki er enn ljóst hvort samkomulag náist á milli Dortmund og Man Utd. Talið er að fyrr eða seinna muni Sancho fara og taka næsta skref á sínum ferli.

„Við erum 100% að horfa á leikmann sem vinnur Gullknöttinn í framtíðinni," sagði Lancaster.

„Jadon vill bara spila fótbolta. Það skiptir ekki máli hvort það sé á sparkvelli eða á Wembley fyrir framan 80 þúsund áhorfendur. Hann vill bara spila fótbolta og vinna. Hann vill fá áskoranir og njóta leiksins."

„Þetta er eins og að horfa á The Last Dance með Michael Jordan. Þú getur ekki tekið knöttinn frá honum. Láttu hann fá knöttinn og hann byrjar að skapa."

Áhugavert verður að sjá í framhaldinu hvort Sancho muni yfirgefa Dortmund eða hvort liðinu takist að halda honum áfram í sínum röðum á næstu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner