Fotbolti.net
07.08.22 - 15:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Maguire: Þetta var martraðarbyrjun

Maguire: Þetta var martraðarbyrjun
Canon

Mynd: EPA

Harry Maguire varnarmaður Manchester United var að vonum ósáttur með leik sinna manna gegn Brighton í dag.

Leiknum lauk með 2-1 sigri Brighton en staðan var 2-0 í hálfleik.

„Við byrjuðum nokkuð vel, en fengum á okkur fyrsta markið sem sló okkur útaf laginu. Þeir náðu völdum á leiknum svo við þurfum að vinna úr því að láta fyrsta markið sem við fáum á okkur að láta það ekki hafa svona mikil áhrif á okkur. Við gáfum boltann alltof auðveldlega frá okkur og þeir fengu sjálfstraust, þetta var martraðarbyrjun að vera tveimur mörkum undir í hálfleik," sagði Harry Maguire eftir leikinn.

Næsti leikur liðsins er gegn Brentford á útivelli á laugardaginn næstkomandi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.