Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 07. september 2022 07:30
Brynjar Ingi Erluson
U19 kvenna: Góður sigur gegn Svíum
Kvenaboltinn
Mynd: KSÍ
Kvennalandsliðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri lagði Svíþjóð, 2-1, er liðin mættust í vináttuleik í gær.

Svíar komust yfir snemma í síðari hálfleik en Emelía Óskarsdóttir jafnaði á 84. mínútu.

Írena Héðinsdóttir Gonzalez skoraði sigurmarkið þremur mínútum síðar og þar við sat.

Þetta var seinni leikur Íslands í ferðinni en liðið tapaði fyrir Noregi, 3-1, á sunnudag.


Athugasemdir