Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 07. desember 2019 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Þjálfari Salzburg: Leipzig fullkomið fyrir Haaland
Mynd: Getty Images
RB Salzburg og RB Leipzig eru bæði í eigu Red Bull og hafa ýmsir leikmenn skipt á milli félaganna undanfarin ár.

Sá næsti gæti verið norska ungstirnið Erling Braut Haaland sem er búinn að vera funheitur í haust og er kominn með 24 mörk í 19 leikjum í öllum keppnum.

Jesse Marsch er þjálfari Salzburg og telur hann að félagaskipti til Leipzig séu rétt skref fyrir hinn 19 ára gamla Haaland.

„Leipzig er frábært félag, sérstaklega fyrir unga leikmenn. Það er frábært fólk sem starfar hjá félaginu og það myndi henta Erling fullkomlega að skipta yfir," sagði Marsch.

Þau eru ansi mörg félögin sem hafa áhuga á Haaland en Leipzig verður að teljast líklegasti áfangastaðurinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner