Fotbolti.net
07.12.22 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Saka fékk bolamynd með Beckham

Bukayo Saka og David Beckham

Bukayo Saka og David Beckham

Canon

Mynd: Getty Images

Gareth Southgate bauð engum öðrum en David Beckham í heimsókn í herbúðir enska landsliðshópsins í Katar. Beckham spjallaði við nokkra leikmenn og fékk sérstaka goðsagnatreyju frá Southgate.

Meðan Beckham var að spjalla við Southgate kom Bukayo Saka, leikmaður Arsenal, upp að honum og bað kurteisislega um mynd af sér með honum.

Saka var aðeins tólf ára gamall þegar Beckham lagði skóna á hilluna og sagði við hann: „Afsakið að ég sé að trufla, en get ég fengið mynd með þér?"

Beckham, sem skoraði sögufrægt mark gegn Grikklandi 2001 þegar Saka var rétt um mánaðar gamall, brosti og setti handlegginn um herðar Saka.

Beckham lék 115 landsleiki fyrir England 1996-2009.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.