Það er mikill áhugi á landsliðsmiðverðinum Ragnari Sigurðssyni en hann hefur tilboð frá FC Kaupmannahöfn í höndunum eins og greint var frá í gær.
Hinn 33 ára gamli Ragnar samdi um starfslok hjá Rostov í Rússlandi á dögunum og hann er nú að skoða næstu skref.
Hinn 33 ára gamli Ragnar samdi um starfslok hjá Rostov í Rússlandi á dögunum og hann er nú að skoða næstu skref.
Nokkur félög í Tyrklandi hafa áhuga á Ragnari en búið var að fjalla um áhuga frá tyrknesku úrvalsdeildarliðunum Trabzonspor og Gaziantep.
Tyrkneskir fjölmiðlar greina svo frá því í morgun að Antalyaspor hafi blandað sér í baráttuna um Ragnar.
Antalyaspor er í fallsæti, stigi frá öruggu sæti, og ætlar að styrkja varnarleik sinn í janúarglugganum.
Athugasemdir