Fotbolti.net
08.01.22 - 08:30
Victor Pálsson

Atletico íhugar að reyna við Cedric

Atletico íhugar að reyna við Cedric
Canon

Mynd: EPA

Atletico Madrid íhugar að reyna við bakvörðinn Cedric Soares sem leikur með Arsenal á Englandi.
Það er Sky Sports sem greinir frá þessu en Cedric er ekki aðalmaðurinn hjá Mikel Arteta, stjóra enska liðsins.

Atletico er búið að selja Kieran Trippier til Newcastle og gæti Cedric komið til að leysa hann af hólmi.

Sky segir að um lánssamning væri að ræða en Atletico þyrfti svo að kaupa Portúgalann í sumar.

Cedric var áður á mála hjá Southampton og hefur einnig leikið með Inter Milan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.