Tveir leikir fóru fram í Faxaflóamótinu í dag.
Stjarnan lagði Keflavík með tveimur mörkum gegn einu. Keflvíkingar komust yfir með marki frá Birgitta Hallgrímsdóttir á 17. mínútu. Örfáum mínútum síðar jafnaði Heiða Ragney Viðarsdóttir metin fyrir Stjörnuna.
Snemma í síðari hálfleik tryggði Alma Mathiesen Stjörnusigur.
Í hinum leiknum mættust Haukar og Afturelding. Mosfellingar sigruðu leikinn 3-0 en Eyrún Vala Harðardóttir, Elfa Sif Hlynsdóttir og Ragna Guðrún Guðmundsdóttir skoruðu mörkin.
Stjarnan 2-1 Keflavík
0-1 Birgitta Hallgrímsdóttir
1-1 Heiða Ragney Viðarsdóttir
2-1 Alma Mathiesen
Haukar 0-3 Afturelding
Mörk Aftureldingar: Eyrún Vala Harðardóttir, Elfa Sif Hlynsdóttir og Ragna Guðrún Guðmundsdóttir
Athugasemdir