Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. janúar 2023 20:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
"Sagði við mig að þetta væri besti dagurinn í lífi sínu"
Steve Evans
Steve Evans
Mynd: Getty Images

Stevenage, sem leikur í fjórðu efstu deild á Englandi vann Aston Villa í mögnuðum leik í Enska bikarnum í dag.


Villa komst yfir í fyrri hálfleik en Stevenage skoraði tvö mörk á síðustu mínútum leiksein og er því komið áfram.

„Þetta er einstakt. Formaðurinn sagði við mig að þetta væri besti dagurinn í lífi sínu og hann er búinn að vera með félaginu í 26-27 ár," sagði Steve Evans stjóri Stevenage.

„Þetta er frábær dagur fyrir bæinn en við munu ekki plata okkur sjálfa, þetta er frábært fótboltafélag og við munum njóta augnabliksins. Við munum vera auðmjúkir og halda áfram að sinna vinnunni á laugardaginn."


Athugasemdir
banner
banner